Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 19. október 2026
Í stuttu máli
- DentalNet vinnur aðeins með þær upplýsingar sem þarf til að tannlæknar og tannsmíðastofur (verkstæði í kerfinu) geti sent vinnuseðla, fylgst með stöðu þeirra og rætt þá sín á milli.
- Við seljum ekki persónuupplýsingar og notum þær ekki í auglýsingaskyni.
- Á vinnuseðli er nafn sjúklings, og kennitala eða fæðingardagur ef tannlæknirinn skráir það, svo verkið fari örugglega á réttan einstakling. Þetta eru heilsufarsupplýsingar og njóta sérstakrar verndar.
- Sjúklingur sést aðeins tannlækninum sem skráði hann og þeirri tannsmíðastofu sem fær vinnuseðil fyrir hann. Skráð er hver opnar, leitar að eða prentar upplýsingar um sjúkling. Nafn og kennitala fara aldrei í tilkynningar, vefslóðir eða skráarheiti.
- Vinnuseðlar, skilaboð, myndir og skrár eru vistuð á Írlandi, innan Evrópska efnahagssvæðisins.
- Myndir eru hreinsaðar af staðsetningu og öðrum lýsigögnum, og stórar myndir minnkaðar, í símanum eða vafranum áður en þær eru sendar, bæði í appinu og á vefnum. Aðrar skrár, t.d. skannanir og PDF-skjöl, eru vistaðar eins og þær berast.
- Starfsfólk DentalNet sér vinnuseðla og skilaboð aðeins hjá tannsmíðastofum þar sem það er sjálft skráð. Á meðan prófanir standa yfir er einn rekstraraðgangur DentalNet skráður hjá tannsmíðastofunni sem tekur þátt, vegna uppsetningar og aðstoðar. Það sem hann opnar er skráð í aðgangsskrá eins og hjá öðrum.
- Skráð er hver opnar vinnuseðil eða sjúkling á vefnum eða í appinu, hvenær og hvaðan. Tannlæknirinn og eigandi tannsmíðastofunnar geta séð þá skrá, og henni er ekki hægt að breyta.
- Tannlæknar, tannsmiðir og starfsmenn tannsmíðastofa geta eytt aðgangi sínum í appinu eða á vefnum (Stillingar → Eyða aðgangi). Eigendur tannsmíðastofa hafa samband við okkur.
Hver ber ábyrgð
DentalNet er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga um notendur þjónustunnar, þ.e. upplýsinga um aðganga, innskráningu og notkun, og um þá sem hafa samband við okkur í gegnum vefinn.
- Rekstraraðili
- Kúspagerðin ehf.
- Kennitala
- 560925-2200
- Heimilisfang
- Arnarás 2, 210 Garðabær
- Netfang
- hello@dentalnet.is
Upplýsingar um sjúklinga á vinnuseðlum vinnur DentalNet sem vinnsluaðili fyrir hönd tannlæknisins og tannsmíðastofunnar, eingöngu samkvæmt fyrirmælum þeirra. Tannsmíðastofan er jafnframt ábyrgðaraðili að eigin skrám um pantanir, t.d. vegna bókhalds, ábyrgðar á smíðinni og skyldna sinna sem framleiðandi sérsmíðaðra lækningatækja. Tannlæknar og tannsmíðastofur geta fengið vinnslusamning við DentalNet sé þess óskað.
Hvaða upplýsingar við vinnum með
Um notendur
- Aðgangur: nafn, netfang, hlutverk (t.d. tannlæknir, tannsmiður eða starfsmaður tannsmíðastofu) og tengsl við tannsmíðastofur.
- Afhending: afhendingarheimilisföng og símanúmer ef það er gefið upp.
- Stillingar: hvaða tilkynningar þú vilt fá.
- Samskipti: skilaboð og athugasemdir á vinnuseðlum og bein skilaboð milli notenda. Ef þú tilkynnir skilaboð eða lokar á notanda skráum við það, og ástæðuna ef þú gefur hana.
- Sími: tilkynningaauðkenni símans, svo hægt sé að senda tilkynningar, og stýrikerfi hans.
- Starfsstofa og lögformlegar upplýsingar: heiti starfsstofu tannlæknis og lögformlegt nafn, kennitala, heimilisfang og framleiðslustaðir tannsmíðastofu, sem prentast á yfirlýsingu um sérsmíðað lækningatæki.
Tæknilegar upplýsingar
- Atburðaskrár: vefþjónustan skráir atburði og villur. Í skránum eru auðkenni notenda og í sumum færslum netföng eða birtingarnöfn. Efni vinnuseðla og skilaboða, og nöfn og kennitölur sjúklinga, eru ekki skráð í þær. Hýsingaraðilinn (Vercel) skráir einnig IP-tölur beiðna.
- Öryggisskrá: þegar hlutverki notanda er breytt skráum við hver breytti, hvenær, netfang notandans og IP-tölu og vafraauðkenni (e. user agent) þess sem breytti. Færslum í skránni er ekki hægt að breyta eða eyða í gegnum kerfið.
- Aðgangsskrá: þegar vinnuseðill, skrár hans, myndir, skilaboð, afhendingarseðill eða afrit af honum eru opnuð á vef DentalNet eða í appinu skráum við hver opnaði, hvenær, hvað var gert og hvaðan (vefur, app eða vefþjónusta), ásamt nafni og hlutverki viðkomandi á þeim tíma. Lög um sjúkraskrár krefjast þess að hægt sé að rekja hver opnaði sjúkraskrá. Ekki er skráð það sem sést í listum, leit, yfirliti, forsýn skilaboða og tilkynningum, né lestur sem fer beint í gagnagrunninn fram hjá vefnum og appinu, þar á meðal tæknilegur aðgangur DentalNet að gagnagrunninum. Færslum í skránni er ekki hægt að breyta eða eyða í gegnum kerfið.
- Aðgangsskrá sjúklinga: þegar upplýsingar um sjúkling eru opnaðar eða prentaðar skráum við hver gerði það, hvenær og hvaðan. Þegar leitað er að sjúklingi skráum við hvaða sjúklingar birtust í niðurstöðunum, en ekki leitarorðin. Skrána sjá tannlæknir sjúklingsins og eigandi þeirrar tannsmíðastofu sem aðgangurinn var á vegum. Ekki er skráð það sem sést í listum. Færslum er ekki hægt að breyta eða eyða í gegnum kerfið.
- Breytingaskrá sjúklinga: hver skráði sjúkling og hver breytti nafni, kennitölu eða fæðingardegi, hvenær, og hvað stóð fyrir og eftir. Hana sjá tannlæknir sjúklingsins og stjórnendur tannsmíðastofu sem sér sjúklinginn. Færslum er ekki hægt að breyta eða eyða í gegnum kerfið.
Samskiptaform á vefnum
Ef þú hefur samband í gegnum vefinn vistum við nafn, netfang, fyrirtæki, land og skilaboð. IP-tala þín er notuð í eina mínútu til að takmarka fjölda innsendinga. Hún er aðeins höfð í vinnsluminni vefþjónsins og ekki vistuð með fyrirspurninni.
Upplýsingar um sjúklinga
Á vinnuseðli eru upplýsingar um sjúkling: fullt nafn, kennitala eða fæðingardagur ef það er skráð, tilvísun (eigið málsnúmer tannlæknis, ef hann notar slíkt), tannkort, verkið sjálft (t.d. vara, litur, efni og stig), athugasemdir, næsti tími sjúklings hjá tannlækni, myndir og skrár, t.d. myndir af tönnum og þrívíddarskannanir, og hvaða efni og framleiðslulotur fóru í tækið. Þetta eru heilsufarsupplýsingar, sem teljast viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt 9. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Af myndum sem teknar eru inni í munni getur verið hægt að bera kennsl á einstakling, og sjúklingar geta verið börn.
Nafnið er skráð svo að verkið fari á réttan einstakling. Tannlæknar halda yfirleitt ekki sérstök málsnúmer, og vinnuseðill án nafns er sjálfur hætta á ruglingi. Kennitala er valkvæð. Sé hún ekki skráð er fæðingardagur notaður til aðgreiningar.
Sjúklingur tilheyrir tannlækninum sem skráði hann. Hann sjá aðeins:
- tannlæknirinn;
- starfsfólk tannsmíðastofu sem hefur fengið vinnuseðil fyrir sjúklinginn;
- starfsmaður tannsmíðastofu sem skráði sjúklinginn fyrir tannlækni, t.d. þegar pöntun berst í síma, áður en vinnuseðillinn er sendur.
Aðrir sjá hann ekki, hvorki aðrar tannsmíðastofur né starfsfólk DentalNet utan eigin tannsmíðastofu. Hver sem sér sjúkling getur leiðrétt nafn hans, kennitölu eða fæðingardag, og hver breyting er skráð. Sjúklingaskrám er ekki eytt.
Kennitala er sýnd að hluta í listum og í heild aðeins á síðu sjúklingsins. Hún er aldrei prentuð. Á miða á kassa er sjúklingurinn sýndur með upphafsstöfum, nema tannsmíðastofan velji fullt nafn eða ekkert. Nöfn og kennitölur sjúklinga fara aldrei í tilkynningar, vefslóðir eða skráarheiti. Tilkynningar geta nefnt vinnuseðil með númeri hans (t.d. #32), en í samnýttum ham appsins sýna ýtitilkynningar hvorki númer né önnur málsgögn. Leitarorð í leit að sjúklingi berast í meginmáli beiðninnar, ekki í vefslóð, og eru ekki vistuð.
Kennitala á heima í sjúklingareitnum og hvergi annars staðar. Kerfið hafnar kennitölum einstaklinga í tilvísun, lýsingu, skilaboðum, athugasemdum og skráarheitum, og vefurinn og appið vara við áður en sent er. Kennitala í heiti skráar sem hlaðið er upp er falin. Nafn sjúklings á heldur ekki heima í skilaboðum eða athugasemdum, en það getur kerfið ekki stöðvað sjálfkrafa.
Myndir eru undirbúnar í símanum eða vafranum áður en þær eru sendar, bæði í appinu og á vefnum. Stórar myndir eru minnkaðar í að hámarki 2560 punkta á lengri hlið og vistaðar aftur sem JPEG, sem skilur öll lýsigögn eftir, þar á meðal staðsetningu. PNG-myndir og litlar JPEG-myndir eru sendar óbreyttar að öðru leyti en því að lýsigögnin eru fjarlægð. Mynd sem ekki er hægt að hreinsa, t.d. á HEIC-sniði í vafra sem getur ekki lesið það snið, er hafnað frekar en að hún sé send óhreinsuð. Aðrar skrár, svo sem skannanir og PDF-skjöl, eru vistaðar eins og þær berast.
Þegar fullgert tæki er tilbúið gefur tannsmíðastofan út í DentalNet yfirlýsingu um sérsmíðað lækningatæki, eins og reglugerð (ESB) 2017/745 krefst. Það á ekki við um millistig eins og mátun, né þegar tannsmiður pantar hjá annarri tannsmíðastofu, því þá framleiðir pantandinn yfirleitt tækið. Á henni eru auðkenni sjúklings, nafn tannlæknisins og starfsstofa hans, lýsing á tækinu, upplýsingar um tannsmíðastofuna og nafn þess sem gaf hana út. Tannlæknirinn sér yfirlýsinguna í DentalNet og getur afhent hana sjúklingi. Yfirlýsingu er ekki hægt að breyta eftir útgáfu; ný útgáfa bætist við ef leiðrétta þarf.
Sjúklingar sem vilja nýta rétt sinn varðandi upplýsingar á vinnuseðli snúa sér til tannlæknis síns eða tannsmíðastofunnar. Tannlæknir og eigandi tannsmíðastofu geta sótt afrit af vinnuseðli, ásamt aðgangsskrá um hverjir hafa opnað hann og hvenær, beint í DentalNet, og séð hverjir hafa opnað, leitað að eða prentað upplýsingar um sjúklinginn. DentalNet aðstoðar þau við að svara slíkum beiðnum.
Notendur DentalNet eru fagfólk og þjónustan er ekki ætluð börnum.
Til hvers og á hvaða grundvelli
- Að veita þjónustuna: stofna aðgang, senda og vinna vinnuseðla og miðla skilaboðum og tilkynningum. Grundvöllur: samningur við þig eða tannsmíðastofuna.
- Að halda þjónustunni öruggri, greina villur og koma í veg fyrir misnotkun. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
- Að svara fyrirspurnum sem berast í gegnum vefinn. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
- Að varðveita vinnuseðla eins og lög um sjúkraskrár og lækningatæki krefjast af tannlæknum og tannsmíðastofum, og gögn eins og lög um bókhald krefjast. Grundvöllur: lagaskylda.
Upplýsingar um sjúklinga vinnum við aðeins til að veita þjónustuna, samkvæmt fyrirmælum tannlæknis og tannsmíðastofu.
Hverjir sjá upplýsingarnar
- Tannsmíðastofa sér nafn og netfang tannlækna og tannsmiða sem eiga viðskipti við hana, og afhendingarheimilisfang (og símanúmer ef það er gefið upp) á þeim vinnuseðlum sem hún sinnir.
- Tannsmíðastofa sér nafn sjúklings, og kennitölu eða fæðingardag ef það er skráð, aðeins á þeim vinnuseðlum sem henni berast. Aðrar tannsmíðastofur sjá ekki sjúklinginn.
- Tannlæknar og tannsmiðir sjá nöfn starfsfólks tannsmíðastofunnar sem sinnir vinnuseðlum þeirra, t.d. í skilaboðum og sögu vinnuseðils.
- Aðgangsreglur í gagnagrunninum eru gerðar til þess að hver tannlæknir og tannsmiður sjái aðeins eigin vinnuseðla og hver tannsmíðastofa aðeins þá vinnuseðla sem henni berast.
- Starfsfólk DentalNet sér vinnuseðla og skilaboð aðeins hjá tannsmíðastofum þar sem það er sjálft skráð. Á meðan prófanir standa yfir er einn rekstraraðgangur DentalNet skráður hjá tannsmíðastofunni sem tekur þátt, vegna uppsetningar og aðstoðar. Það sem hann opnar er skráð í aðgangsskrá eins og hjá öðrum. Bein skilaboð sér starfsfólk DentalNet aðeins í samtölum sem það á sjálft aðild að.
- Ef þú tilkynnir skilaboð sjá kerfisstjórar DentalNet hver tilkynnti, hver skrifaði skilaboðin, hjá hvaða tannsmíðastofu og ástæðuna ef hún var gefin, en ekki skilaboðin sjálf; tilkynningin veitir ekki aðgang að samtalinu. Sá sem tilkynnt er um sér ekki tilkynninguna, og sá sem lokað er á sér ekki lokunina.
- Tannlæknir og tannsmiður sjá aðgangsskrá eigin vinnuseðla og sjúklinga, með nafni og hlutverki þeirra sem opnuðu þá, og eigandi tannsmíðastofu aðgangsskrá vinnuseðla stofunnar og þess sem starfsfólk hennar opnaði um sjúklinga.
Utan þjónustunnar afhendum við ekki persónuupplýsingar öðrum en þeim þjónustuaðilum sem taldir eru upp hér að neðan, nema okkur sé það skylt samkvæmt lögum.
Þjónustuaðilar (undirvinnsluaðilar)
Við notum eftirtalda þjónustuaðila.
Þjónustuaðilarnir vinna upplýsingarnar samkvæmt skilmálum sínum um vinnslu persónuupplýsinga. Flutningur upplýsinga til Bandaríkjanna byggist á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU–US Data Privacy Framework) eða á stöðluðum samningsákvæðum.
Vafrakökur
Vefurinn notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur, þ.e. innskráningarkökur sem Clerk setur (t.d. __session og __client_uat). Án þeirra er ekki hægt að skrá sig inn. Við notum engar vafrakökur til greiningar eða auglýsinga og heimsóknatalning Vercel notar ekki vafrakökur.
Nokkrar stillingar, t.d. hvaða dálkar sjást í töflum, eru geymdar í vafranum þínum og berast okkur ekki.
Hve lengi við geymum upplýsingar
- Aðgangsupplýsingar eru geymdar þar til aðganginum er eytt.
- Tannlæknar, tannsmiðir og starfsmenn tannsmíðastofa geta eytt aðgangi sínum í appinu eða á vefnum (Stillingar → Eyða aðgangi, eða á biðsíðunni ef aðgangurinn hefur ekki enn verið tengdur tannsmíðastofu). Eigendur og stjórnendur tannsmíðastofa hafa samband á hello@dentalnet.is, þar sem aðgangur þeirra tengist skrám stofunnar.
- Þegar aðgangi er eytt eru nafn, netfang, stillingar, tilkynningar, tilkynningaauðkenni, viðbrögð við skilaboðum, lokanir á notendur, tengsl við tannsmíðastofur og afhendingarheimilisföng sem ekki eru á vinnuseðli fjarlægð, og aðgangurinn birtist sem „Eyddur notandi“. Netfangið helst þó í öryggisskrá yfir breytingar á hlutverkum, nafn eða netfang í aðgangsskrá yfir vinnuseðla sem viðkomandi opnaði, og nafn tannlæknis á útgefnum yfirlýsingum um sérsmíðuð tæki. Tilkynningar um skilaboð eru geymdar áfram sem öryggisskrá.
- Vinnuseðlar, sjúklingar sem tannlæknir skráði, myndir og skrár á vinnuseðlum, skilaboð og athugasemdir á vinnuseðlum, yfirlýsingar um sérsmíðuð tæki og bein skilaboð eru varðveitt áfram og birtast undir „Eyddur notandi“. Heimilisföng á vinnuseðlum fylgja skrá vinnuseðilsins. Ekki er hægt að senda ný skilaboð í samtali við eyddan aðgang.
- Tilkynningaauðkenni eru fjarlægð við útskráningu og eru ekki lengur notuð ef appið hefur ekki verið opnað í 60 daga.
- Vinnuseðlum, ásamt skrám, skilaboðum, athugasemdum og sögu þeirra, er ekki eytt. Samkvæmt 7. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár má ekki eyða upplýsingum úr sjúkraskrá nema með samþykki landlæknis. Athugasemdir og skrár sem eru fjarlægðar eru faldar en ekki eyttar, og breytingar á vinnuseðli eftir að hann var sendur eru skráðar. Eina undantekningin er vinnuseðill sem stofnaður var fyrir mistök og er eytt innan viku, áður en tannsmíðastofan hefur hafið vinnu við hann og án skráa; slík eyðing er skráð með ástæðu í skrá sem ekki er hægt að breyta.
- Sjúklingaskrár (nafn, kennitala og fæðingardagur) eru hluti af skrá vinnuseðlanna og fara eftir sömu reglu: þeim er ekki eytt, og leiðréttingar eru skráðar í breytingaskrá.
- Yfirlýsingar um sérsmíðuð lækningatæki eru varðveittar í 15 ár frá útgáfu og ekki er hægt að breyta þeim eða eyða á þeim tíma. Reglugerð (ESB) 2017/745 (viðauki XIII) krefst 10 ára, eða 15 ára fyrir ígræðanleg tæki; DentalNet varðveitir allar yfirlýsingar í 15 ár.
- Upplýsingar um verð og greiðslur á vinnuseðlum fylgja vinnuseðlinum. Lög nr. 145/1994 um bókhald krefjast þess að þær séu varðveittar í að minnsta kosti sjö ár frá lokum reikningsárs.
- Öryggisskrá um breytingar á hlutverkum er varðveitt í öryggisskyni.
- Aðgangsskrá yfir vinnuseðla er varðveitt ótímabundið, einnig eftir að vinnuseðli eða aðgangi er eytt, því lög um sjúkraskrár krefjast þess að hægt sé að rekja hver opnaði sjúkraskrá. Sama gildir um aðgangsskrá og breytingaskrá sjúklinga.
- Fyrirspurnir úr samskiptaforminu eru geymdar á meðan erindinu er sinnt og þar til þeim er eytt.
- Atburðaskrár eru geymdar í takmarkaðan tíma samkvæmt geymslureglum hýsingaraðilans.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, fá þær fluttar til annars aðila, andmæla vinnslu og krefjast takmörkunar á henni.
Réttur til eyðingar nær ekki til upplýsinga sem tannlæknum og tannsmíðastofum er skylt að varðveita: vinnuseðla og alls sem á þeim er, sjúklingaskráa, yfirlýsinga um sérsmíðuð tæki og beinna skilaboða. Um það gilda b- og c-liðir 3. mgr. 17. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. 7. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár og viðauka XIII við reglugerð (ESB) 2017/745 um lækningatæki. Þegar þú eyðir aðgangi þínum birtast þessi gögn undir „Eyddur notandi“, með þeim undantekningum sem lýst er í kaflanum um varðveislu hér að ofan.
Beiðnir má senda á hello@dentalnet.is. Við svörum innan mánaðar.
Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd, personuvernd.is.
Öryggi
- Öll samskipti við DentalNet eru dulkóðuð (TLS).
- Gagnagrunnur, skráageymsla og rauntímaþjónusta eru hýst hjá Supabase á Írlandi, og vefþjónustan keyrir hjá Vercel í Dublin. Innskráning (Clerk) og ýtitilkynningar (Expo) fara um Bandaríkin, án upplýsinga um sjúklinga.
- Gagnagrunnsþjónustan dulkóðar gögn og skrár í geymslu.
- Aðgangsreglur í gagnagrunninum takmarka tannlækna og tannsmiði við eigin vinnuseðla og hverja tannsmíðastofu við sína. Sömu reglur gilda um starfsfólk DentalNet í þjónustunni.
- Myndir og skrár eru í lokaðri geymslu og aðeins aðgengilegar með tímabundnum tenglum.
- Innskráningarlyklar eru geymdir í öruggri lyklageymslu símans (Keychain á iPhone, Keystore á Android).
- Tilkynningar á læstum skjá sýna aldrei texta úr skilaboðum eða upplýsingar um sjúklinga. Vinnuseðill getur verið nefndur með númeri sínu, en í samnýttum ham appsins birtist aðeins almenn tilkynning um að opna DentalNet, án upplýsinga um málið.
- Sjúklingar sjást aðeins þeim sem vinna mál þeirra, og hver opnun, leit og prentun er skráð. Reitir sjúklinga eru ekki dulkóðaðir sérstaklega umfram dulkóðun gagnagrunnsins í geymslu.
- Appið hylur efni sitt þegar skipt er á milli forrita, svo það sjáist ekki í yfirliti yfir opin forrit.
Breytingar
Ef stefnan breytist uppfærum við þessa síðu og dagsetninguna efst. Við verulegar breytingar látum við notendur vita.